Grillbúðin.is
Frí sending á vörum keyptum í netverslun yfir verðmæti kr. 40.000 utan höfuðborgarsvæðisins
Afhendingar utan höfuðborgarsvæðis eru með Flytjanda, Landflutningum eða Póstinum og sækjast pantanir á afhendingarstað þeirra næst viðskiptavini.
Sendingar fara af lager okkar út á land fyrir hádegi fyrsta virka dag eftir pöntun.
Vörur að verðmæti undir kr. 40.000,- eru sendar með flutningsaðila á kostnað kaupanda skv. gildandi gjaldskrá á hverjum tíma.
Einnig er hægt að sækja vörur sem pantaðar eru í vefverslun í verslun okkar að Smiðjuvegi 2 á afgreiðslutíma.
Almennt
Grillbúðin áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, einnig geta vörur selst upp áður en pöntun er frágengin.
Afhending vöru
Hægt er að sækja vöruna til okkar eða fá hana senda með flutningsaðila að eigin ósk. Grilbúðin ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Grillbúðinni og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
Verð og lagerstaða
Vinsamlegast athugið að verð og lagerstaða á netinu getur breyst án fyrirvara og er fyrirvari gerður varðandi villur í texta myndum, lagerstöðu og verði.
Skattar og gjöld
Öll verð eru með virðisaukaskatti og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.